16.3.2010 | 17:29
Skilaboðin eru skýr:
Við erum verst! Við erum bara smáþjóð! Lútum erlendum yfirráðum! Köfnum úr minnimáttarkennd og hættum að vera svona góð í handbolta, tónlist, skrifum og nýsköpun.
Við eigum ekkert gott skilið og eigum engum árangri að skila! Eltum alla auðmenn á hjara veraldar og refsum þeim sem sýna dugnað og framtakssemi.
Göngum öll saman með hauspoka og lærum að skammast okkar fyrir allt!
Missum trúna á eigið ágæti, sköpun og dugnað!
Okkar útrásarvíkingar voru mikið verri en þeir sem byggja Evrópu og lögðu sína blessun yfir herlegheitin.
Sættum okkur við að vera máttlaus og stefnum að því að verða ógeðslegasta, ljótasta, hauspokagengi veraldar!
Alþjóða samfélagið hlýtur að skammast sín fyrir okkur!
|
Útrásarvíkingar vandræðalegir |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
7.3.2010 | 00:29
Geri hér grein fyrir atkvæði mínu - hóst
Þar sem að Jóhanna og Steingrímur sátu heima í fyrstu þjóðaratkvæðagreiðslu lýðveldisins ákvað ég að gera það sama.
Heima hef ég setið í allan dag, fylgst með fjölmiðlaumfjöllun, lært nokkrar lexíur og svo horfði ég á myndina The informant!
Helsta ástæðan fyrir heimasetu minni er bráðaofnæmi fyrir þeim stjórnmálamönnum og konum sem hafa verið í aðför gegn lýðræðinu síðastliðnar vikur. Þessi hópur hefur unnið gegn kosningunni allar götur frá þeim fróma degi þegar herra Ólafur Ragnar Grímsson synjaði ólögum þeim sem að Alþingi samþykkti með aðeins 33 atkvæðum.
Ég forðast einnig að rekast á manninn sem kallaði 5% þjóðarinnar fábjána og þannig held ég ofnæminu í skefjum.
Þegar þetta lið byrjar að bulla sinn áróður í sjónvarpinu fæ ég nettan fábjánahroll sem getur varað í klukkutíma eða allan sólarhringinn. Það fer megnið eftir bullinu og hvað lengi það varir í imbakassanum mínum.
Nú heldur sá er þetta les að ég hafi ekki tekið þátt í kosningunni, en það gerði ég sannarlega og geri hér með opinberlega grein fyrir mínu litla utankjörfundaratkvæði.
Ég var á tímabili hrædd um að plebbaliðinu myndi takast það að koma í veg fyrir kosninguna og þeim tókst það næstum, það mátti ekki miklu muna.
Ég kaus að hafna þessum vonleysislögum ríkisstjórnarinnar og hafna þannig dónaskap gömlu nýlenduveldanna í garð almennings á Íslandi.
Með nei -inu mínu lýsi ég einnig frati á forsætisráðherra, fjármálaráðherra,umhverfisráðherra, viðskiptaráðherra, alla þingmenn Samfylkingar og þingmann Borgarahreyfingar.
(Til þess að sýna lágmarks kurteisi sleppi ég því að nafngreina einstaka plebba).
Skilaboðin sem ég sendi með mínu nei - i eru skýr: „Ég hafna öllum samningum, málamiðlunum og frekari skrípaleik í þessu máli. Þetta er skuld þrotabús Landsbankans, mér óviðkomandi og lögin eru mér hliðholl.
.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
4.3.2010 | 15:37
Niðurlæging
Sjálfstæðar konur hljóta að leggjast gegn kynjakvóta og forgjöf inn í viðskiptalífið háð kyni.
Manneskjan kemst áfram á eigin hæfileikum og dugnaði, en ekki kyni. Einstaklingurinn tekur þátt í stjórnun fyrirtækja ef honum sýnist svo, hafi metnað til, áhuga og dugnað.
Þetta er ekkert annað en pínleg niðurlæging og er ekki til þess fallið að auka hagkvæmni í rekstri fyrirtækja.
Alþingi setur nú fordæmi fyrir helsi, en ekki frelsi.
Er ekki nóg annað að gera hjá ráðamönnum þjóðarinnar annað en að setja niðrandi löggjöf sem allar frjálshuga og hæfileikaríkar konur fordæma?
|
Kynjakvóti í stjórnum fyrirtækja |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
23.2.2010 | 21:14
Stundin okkar?
Varúð!
Þetta myndband getur valdið mikilli ógleði,-
22.2.2010 | 16:50
Hvað er frjálshyggja? - stutt myndband
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
17.2.2010 | 17:11
Evrópusambandið niðurlægir Grikkland
Efnahagsbandalag Evrópu ætlar Grikklandi að skera niður í ríkisútgjöldum á ómannúðlegan hátt og virðist ekki harma þá þýðingu fyrir lýðinn sem að landið byggir.
Fregnir herma að ESB hafi tekið þá ákvörðun að svipta Grikkland atkvæðisrétti á fundi sem haldinn verður í næsta mánuði og vilja sumir ráðamenn sambandsins að Grikkir verði endanlega sviptir atkvæðarétti, þar til að efnahagshorfur í landinu batna.
Evrópusambandið hefur ítrekað haldið því til haga að sambandið ætli að hjálpa Grikkjum úr þessari kreppu með aðgerðum, en án þess þó að útskýra það nánar í hverju þær aðgerðir eru fólgnar.
ESB þröngvar Grikkjum í blóðugan og ógeðfelldan niðurskurð og ef að ráðamenn í Grikklandi hlíta ekki þeirri kröfu mun Evrópusambandið fyrirskipa niðurskurð samkvæmt 126. grein Lissabonsáttmálans og svipta þannig aðildarríkið Grikkland því litla sjálfstæði sem að ríkið hefur innan bandalagsins.
Þessi bjarnargreiði efnahagsbandalagsins er þar að leiðandi mikil niðurlæging fyrir Grikki.
Það er víst að efnahagsástand Grikkja muni hafa neikvæð áhrif á evruna ef ekkert verður að gert og setur það framtíð myntbandalagsríkja í töluvert uppnám.
Djúpar sprungur eru að myndast innan efnahagsbandalags Evrópu og er því óráðlegt fyrir lýðveldið Ísland að flækjast inn á það sprungusvæði.
|
Grikkjum hótað refsiaðgerðum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
13.2.2010 | 12:45
Lítum til allra átta
Fyrr eða síðar mun koma að þjóðaratkvæðagreiðslu, þar sem fólkið í landinu mun taka lýðræðislega ákvörðun um aðild Íslands að efnahagsbandalagi Evrópu. Því er rétt að huga að ýmsu í starfsemi bandalagsins og hvort aðild að því sé í raun skynsamleg og farsæl fyrir okkur Íslendinga.
Evrópa virkar ekki stór þegar litið er á heimskortið og telja íbúar innan efnahagsbandalags aðeins um 6% jarðarbúa, þannig að 94% þeirra sem alheimsþorpið byggja, lifa og hrærast utan ESB.
Bandalagið ákvarðar fríverslunarsamninga sem gilda jafnt yfir öll 27 aðildarríkin sem lokar ESB af sem viðskiptablokk, en Íslendingar eiga þó í umfangsmiklum viðskiptum við ríki innan sambandsins. Íslendingar sem og fleiri þjóðir hafa aðgang að regluverki ESB með samningnum um evrópska efnahagssvæðið (EES), en hafa þrátt fyrir það takmarkaða möguleika til að hafa áhrif á reglusmíði innan Evrópubandalagsins, en sá möguleiki er þó vissulega til staðar að Íslendingar láti meira að sér kveða á þeim vettvangi.
Þó svo að 70 af hundraði utanríkisverslunar sé við aðildarríki ESB er nauðsynlegt að líta til allra átta og hafa alla möguleika opna. Íslendingar hafa meiri möguleika til þess að auka viðskipti sín við ríki utan efnahagsbandalagsins séu þeir utan bandalagsins en innan þess. Í þessum efnum er allur heimurinn undir, og nægir þar að nefna Bandaríkin, Kanada og Asíuríkin. Það yrði í raun mikið óheillaspor í baráttunni fyrir frelsi, frjálsum viðskiptum og lýðræðisumbótum að samþykkja aðild að Evrópusambandinu.
Það er mikilvægt að nýta alla þá viðskiptamöguleika sem gefast og forðast að eygja aðeins eina lausn. Frjálshuga Íslendingar horfa á allan heiminn, en ekki eingöngu til Evrópu.
Pistill áður birtur á vef Frjálshyggjufélagsins www.frjálshyggja.is
|
Sjálfstæðir Evrópumenn á stofnfundi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
9.2.2010 | 01:18
Gratis og laggott
Hversu margfalt hærri verður Icesave - reikningurinn en Alþingi reiknar með?
Getur verið að reikningurinn verði tvöfalt hærri, eða jafnvel tífalt hærri?
Þá verður sú tala ekki í milljónum, ekki í tugmilljónum, ekki í hundrað milljónum, heldur nemur sú upphæð nokkur hundruð milljörðum króna.
Annars er það einkennilegt að ríkisstjórnin skuli kaupa þjónustu hjá Breskri lögfræðistofu á meðan allt efni sem þarf að skoða er aðgengilegt. Það er líka dálítið dularfullt að Alþingi skuli ekki notfæra sér þann möguleika að fá gratis álit á þessu einstaka máli.
Það er afar mikilvægt að Íslendingar hafni Icesave - lögunum í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu.
Það er gott að halda því til haga að Íslendingar skulda ekki svo mikið sem eina evru til Breta og Hollendinga. Íslensk stjórnvöld tóku aldrei ákvörðun um það að taka lán sem greiða á til baka með 5,5% vöxtum, heldur var það einhliða ákvörðun Breta og Hollendinga að greiða sínum innistæðueigendum til baka þær upphæðir sem lagðar voru inn á fjárfestingareikninginn.
Icesave - getur ekki flokkast undir ,,okkar alþjóðlegu skuldbindingar"! Þeir sem halda því fram slá viljandi ryki í augu fólks eða eru einfaldlega illa upplýstir.
Til þess að ná fram pólitískri sátt í deilunni var ákveðið að hefja samningaviðræður á milli vinaþjóðanna.
Það er ljóst að þær samningaviðræður hafa engan árangur boðið og hafa Bretar og Hollendingar slegið á útrétta sáttarhönd Íslensku þjóðarinnar.
Þá er staðan orðin þannig að það verður að fara að Alþjóðlegum lögum sem eru nokkuð skýr og hliðholl Íslendingum hvað þetta mál varðar.
Ef að Bretar og Hollendinga telja sig eiga eitthvað inni hjá Íslenskum skattborgurum, þá er þeim ávallt velkomið að sækja sinn rétt fyrir dómstólum.
Það er eitt markmið með þessari laggóðu bloggfærslu og það er að setja fram fyllilega gratis skoðun höfundar á þessum málum.
mbk HH
|
Tífalt hærri reikningur en vænst var |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Fjármál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
4.2.2010 | 23:23
Sæluboðorð aðildarsinna
Sælir eru einfaldir, því að þeir vilja aðild að ESB.
Vansælir og sorgbitnir, þeir búa innan ESB.
Sælir eru hógværir, því að þeir hafa engan áhuga á aðild að ESB.
Sælir eru þeir sem hungrar og þyrstir eftir óréttlætinu, því að innan ESB munu þeir saddir verða.
Vansælir eru miskunnsamir, því að innan ESB rúmast engin miskunn.
Vansælir eru hjartahreinir, því að þeir fá engin feit embætti í Brussel.
Vansælir verða lýðræðisflytjendur, því að sú hugmyndafræði datt upp fyrir innan ESB.
uh-
mbk HH
|
Aðildarviðræður taki 1-2 ár |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
4.2.2010 | 22:32
Evrópusambands vorið - bænir Evrópusambandssinna
Evrópusamband vort, sem á bækistöðvar sínar í Brussel.
Helgist það nafn, tilkomi þess stórríki
verði þess vilji, svo í Evrópu sem og í öðrum álfum.
Gef oss í dag örlítið maðkað mjöl.
Og fyrirgef oss ekki vorar skuldir
svo sem vér og reynum að fyrirgefa vorum skuldunautum.
Leið þú oss í freistni og frelsa oss frá öllu fullveldi og sjálfstæði
Því að það er ríkið, mátturinn og dýrðin
vonandi að eilífu.
ESBmen

Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Halldóra Hjaltadóttir
Bloggvinir
-
malacai
-
a2
-
axelaxelsson
-
axelthor
-
flinston
-
kisabella
-
asgrimurhartmannsson
-
lydveldi
-
baldher
-
benediktae
-
bjarnihardar
-
bjarnimax
-
eeelle
-
erlan
-
frjalshyggjufelagid
-
hleskogar
-
gudmundurfranklinjonsson
-
zumann
-
gmaria
-
alit
-
gunnargunn
-
tilveran-i-esb
-
gunnarwaage
-
austri
-
maeglika
-
drengur
-
hreyfingin
-
ingagm
-
golli
-
isleifur
-
islandsfengur
-
jonsullenberger
-
jonvalurjensson
-
juliusbearsson
-
kaffistofuumraedan
-
kollakvaran
-
krist
-
altice
-
gmc
-
mofi
-
morgunbladid
-
roostercockwell
-
natan24
-
offari
-
svarthamar
-
pawel
-
pallblondal
-
motieinelti
-
corvo
-
fullvalda
-
duddi9
-
sighar
-
sjonsson
-
sisi
-
siggith
-
skuldlaus
-
solthora
-
stebbifr
-
lehamzdr
-
bokakaffid
-
stormsker
-
saemi7
-
tara
-
timannatakn
-
umrenningur
-
kreppuvaktin
-
viska
-
thorrialmennings
-
icekeiko
-
thorsaari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.3.): 233
- Sl. sólarhring: 235
- Sl. viku: 277
- Frá upphafi: 8900
Annað
- Innlit í dag: 200
- Innlit sl. viku: 224
- Gestir í dag: 199
- IP-tölur í dag: 195
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar







